ISHURÐIR

Iðnaðarhurðir

Við höfum margra ára reynslu í smíðum og uppsetningu á iðnaðarhurðum af ýmsum toga. Við sjáum um framleiðslu hurðanna sem fer alfarið fram á Íslandi með gæða hráefni frá Flexiforce og Epco. Með því að tryggja gæða hráefni bjóðum við uppá hurðir sem standast vel íslenskar aðstæður og uppfylla íslenskar byggingareglugerðir.

Við bjóðum upp á hurðir í öllum stærðum og gerðum, frá einum upp í 40 fermetra. Allar hurðir eru framleiddar eftir máli og við aðstoðum okkar viðskiptavini við mælingar svo að hurðin passi sem best.

Við leggjum mikið upp úr persónulegri og skjótri þjónustu. Við getum afgreitt hurðir á skömmum tíma og erum skjótir til ef upp koma tjón, þar sem allir varahlutir eru til á lager. 

 

Panill

Í iðnaðarhurðirnar höfum við helst notað eina gerð panils, rifflaðan, sem er mjög slitsterkur frá framleiðandanum Epco í Belgíu. Panillinn er 40 mm þykkur og hefur gott einangrunargildi, K-gildi uppá 0.5W á fermeter. Hljóðeinangrun er um 25 dB. Fyrir ýtarlegri upplýsingar og fleiri útgáfur sem hægt er að sérpanta hjá okkur má sjá heimasíðu Epco.

Við flytjum inn einn lit af panil en hægt er að mála hurðirnar í öllum litum RAL litakerfisins. Þegar flekarnir berast til landsins þá eru þeir húðaðir með pólýúrethan og því notum við eingöngu tveggja þátta pólýúrethan málningu á okkar hurðir. Með því gengur málningin í efnasamband við húðina á hurðunum og flagnar ekki af.

Gluggar

Við bjóðum uppá stílhreina og vandaða glugga frá Flexiforce.

Hægt er að fá hvíta glugga í stærð 511 x 321 mm og svarta glugga í stærð 680 x 373 mm. Báðar tegundir uppfylla CE staðla og hafa K gildi uppá 2.8 W á fermeter. Hægt er að sérpanta glugga frá Flexiforce gegn auka gjaldi.

Að auki höfum við reynslu af uppsetningu á Full Vision gluggum. Full vision gluggarnir eru heilir flekar af gluggum þar sem hægt er að hafa einn eða fleiri Full vision fleka samsetta með panilum. 

Gönguhurðir

Allar gönguhurðirnar frá okkur gerðar úr sama panil og hurðirnar og eru þær með ASSA læsingu. 

Ert þú í framkvæmdarhugleiðingum? Hafðu samband og fáðu tilboð

Tilbúnar og uppsettar hurðir